Bandaríkin hafa terror-æði.
Ég sel þeim vopn og á því græði.
Hver er jú sinnar gæfu smiður.
Megi aldrei koma aftur friður.

Verkafólkið mitt krefst hærri launa.
Kröfurnar eru mér til rauna.
Hver er jú sinnar gæfu smiður.
Berjum aumingjana alla niður.

Skattar mínir eru allt of háir,
en bílar mínir allt of smáir.
Hver er jú sinnar gæfu smiður.
Leggjum Félagsmálastofnun niður.