Það er erfitt.
Að vera æðsti maður Danaveldis.
Það er erfitt.
Að láta brjóta sig.
Það er erfitt.
Að vera knúinn niður á hnéinn af aumri bændaþjóð.
Það er erfitt.

Að húka einn á steinstalli með opinn arminn
í eilífri bið
eftir einhverjum sem vill
taka afsökun.