HATUR OG FYRIRLEITNI

Þú horfir alltaf á mig
Af hverju horfirðu alltaf á mig?
Sama hvort ég vaki eða sef
Þú horfir samt alltaf
Þó oftast aðeins með öðru auganu
En með báðum hatarðu mig
Annað er heitt
Og brennur með heift og bræði
Hitt er kalt
Og nístir af kulda og fyrirleitni
Af hverju hatarðu mig?

Stundum græturðu
Og ég veit ekki af hverju
En þú grætur
Og horfir ekki lengur á mig
En þú hatar mig samt
Þú grætur því þú hatar mig
Það hlýtur að vera

Þess vegna græt ég
Því þú hatar mig