þú horfir fram á veginn
með bros á vör
horfir í augu mín
djúpt í augu mín
og rannsakar hjarta mitt
finnur ekkert
það er lokað í dag

þú horfir til sumars
með gleði í hjarta
hugsar um mig
án þess að vita nokkuð
fannst ekkert
sem þú leitaðir að

þú horfir til veturs
með frost í huga
og sérð hjarta mitt fyrir þér
hrímað að utan
frosið fast
kalt
tómt

þú horfir í augu mín
og sérð mig