Blóðþyrstur hugurinn sveimar svangur
slóttug augun blikka án samúðar
lyktin af holdi ærir vitstola skynfæri

bráðin föst í sínum sjálfshverfa heimi
grunlaus um steðjandi hættur og vonda drauma
hvítar dúfur umleika skjannahvítt friðarbros

eltingaleikurinn hefst…
“True words are never spoken”