Færðu sálina úr spennitreyju hversdagsleikans
Hægt og rólega svo engin heyri
hægt og rólega svo þú særir hana ekki
opnaðu svo hvíta bólstraða hurðina
með hárnálinni sem gleymdist í kjöltu þinni
það getur tekið tíma
það getur tekið ár
hlauptu svo í gegnum ganga raunveruleikans
þangað til þú kemst út í galna veröldina
þangað til þú kemst út í tóm vitleysunnar
Passaðu þig bara á endurtekningum í hvítum sloppum
þær eru þá komnar til að spenna þig á ný.
-Sithy-