Oki þetta er bara eitthvað sem ég fann á gólfinu…

Ekkert nema feitt ljótt fífl

Ég opna augun og hugsa
Ég er fífl
Ég lít í spegil og muldra
Ég er ljótt fífl
Ég stíg á viktina og öskra
Ég er ekkert nema feitt ljótt fífl!!!
En hvað lífið er skrýtið…
Hérna er ég að deyja úr sjálfsvorkun
en úti bíður þú í snjónum.
Bíður eftir að komast inn.
Láta mig vita að þetta sé allt í lagi.
“Allir hata útlitið sitt”
Að þér finnist ég Perfect!
Hvað nú sem það þýðir.
En ég
ég hleypi þér ekki inn.
Fel mig á bak við þykkan vegg þunglyndis
sem vill ekki fara.
Að lokum gefstu upp og ferð
og partur af mér deyr.
Ég sit hér ein með þreklaust hjarta
sem getur ekki elskað lengur
og vona
vona að þú komir fljótlega aftur.
Því ég er strax farin að sakna þín.

Rakel
Lala 60 Mage Skullcrusher EU <Shadow of the Past>