Ég heyri ekki hljóðin sem fylgja þér
það er eins og þú sért ekki til
samt sé ég þig svo vel
lyggja hérna hjá mér eins og í draumi
eins og ímyndun
og ég legg hönd mína á brjóst þitt
bara til að vera viss
bara til að finna
til að vera til
en hönd mín tekur í tómið eitt
og ímynd þín hverfur
augun fyllast af tárum
hjartað tekst á flug
flýgur út úr brjósti mínu
er orðið þreytt á brellunum
sem hugurinn veldur
brestur.

Ég sé þig standa í hurðinni
ég trúi ekki lengur vitund minni
svo heyri ég fótspor þín
þú nálgast mig
og hjartað byrjar aftur að slá.
-Sithy-