stór himinn og gleypandi ofurstirni blasa við mér
er ég ligg í þægilegu móki á ströndinni hér
á sólarströnd þegar sólin er hnigin til viðar
og víman í galtómum heilanum iðar.

áfengi og amfetamín
vindlar og eðalvín
víma og brengluð sýn
tilveran er skratti fín.

á borðinu hvíla diskar hlaðnir skelfisk og humar
á móti mér hlæjandi eiturhressir gumar
kvöldið er ungt og alkóhól um æðar rennur
úr augum mér neisti og lífsþráin brennur.

áfengi og amfetamín
vindlar og eðalvín
víma og brengluð sýn
tilveran er skratti fín.

undir morguninn söngvarnir í eyrum mér óma
meðan byggðin í kring er lögst í dróma
ég hef vakað frá morgni til morguns í vímu
á sólarbekk ligg ég í morgunsólarskímu.

áfengi og amfetamín
vindlar og eðalvín
víman er skratti fín
tilveran er brengluð sýn.


-pardus-

Í tilefni þess að ég er að fara til Costa del Sol eftir 19 daga!!!! ;) *liggaliggalái!!!!* *mont*mont* ;þ
Náttúrubarn, landfræðinemi, veiðimaður, ljóðskáld og alls konar manneskja.