yfirlætislegt yfirskin
að ofan
bersýnilega blóðugt
og bölvað
augsýnilega
ölvað…

(ómögulegu óhreinu ómagar)

…og eitthvað svo ógeðslega
mölvað
sálartetrið sýkt og soðið
svo sjúklega loðið…

(vannærðu viðbjóðslegu viðvaningar)

…með bernaise-sósu