Ég sé þig fyrir mér
í rósrauðum ljóma
Þú stendur útvið sjóinn
horfir dreyminn
á fuglana fljúga hjá

Þú brosir til mín
dularfullu brosi
hoppar niður af steini
og gengur áfram stíginn

öldurnar gljáfra

Ég veit þetta ert ekki þú
sem brosir svo blítt til mín
ég veit þetta ert ekki þú
sem elskar hafið eins og ég
ég veit þetta ert ekki þú
sem horfir dreyminn á fuglinn
ég veit þetta ert ekki þú
því þú ert farinn