Viltu heyra mig?
Hvaða máli skiptir þig?
Hvernig andlegt ástand mitt er einmitt núna!
Mér líður ekki vel
Mér er ekki um sel
Og svo er mér flökurt til þokkabóta!

Ég ætti kannski að passa mig
Ég ætti kannski að hætt’ að pirra þig
Eg næ engu taki
Heldurðu að saki?
Þó ég kasti upp í kjöltuna þína!

Ég heyi mjög oft stríð
Og aðeins mér ég býð
Og sprengi loksins sjálfan mig í tætlur!
En oftast ertu með
Þó það sé þér þvert um geð
Því sprengjur eiga oftast ákveðinn radíus!

Ég ætti kannski að passa mig
Ég ætti kannski að hætt’ að pirra þig
Eg næ engu taki
Heldurðu að nokkuð saki?
Þó ég kasti upp í kjöltuna þína!