hamingja
ó hamingja
endalaus hamingja
allt virðist ganga upp
heimurinn bíður eftir mér
ætlar að taka við mér opnum örmum
yndislegasta og stærsta faðmlag sem hugsast getur

öll þessi vinna
sem hefur kostað mig svita og tár
áhætta ei meir
borgaði sig eftir allt saman
þetta á ég skilið

enginn getur nokkurn tímann tekið þetta frá mér
því að styrkur minn eykst með degi hverjum
og ég er ósigrandi

ég treysti aðeins á sjálfa mig

húrra fyrir mér!