REGNIÐ

Í regninu stend ég aleinn
Droparnir merja mig eins og steinn
Það er svo kalt og svo sárt
Hjálpaðu mér, ég á svo bágt

Regnið hamrar á baki mér
Heggur svo fast að á mér sér
Úr minni húð drýpur blóð
Hjálpaðu mér, vertu svo góð

Ég leyta skjóls sem hvergi finnst
Hvergi vörn svo á sé minnst
Ég tek á rás, að undan kemst ei
Hjálpaðu mér áður en ég dey

Verndaðu mig, vertu mitt skjól
Vermdu mig, vertu mín sól
Þú ert sú eina sem bjargað mér kann
Hjálpaðu mér, mér sem þér ann