Í gær dó dagurinn
og var jarðaður með viðhöfn
sungu fuglar sorgarmars
blésu vindar í veðurins lúðra
á meðan kistan var lögð
í nývígða næturmold
milli deyjandi geisla sólar.
—–