Epli hennar svo rauð og fögur
ég hef heyrt að ekkert í þessari veröld
bragðaðist betur en hennar.

Og ef maður tekur bita
verður líkaminn allur annar
og betri
erfðasyndin fylgir
og eilíf æska.

Kraftur á grein eikar
guðaepli - æskuepli
af þekkingunnar tré.

Og við nærum okkur vel
á eplum guðanna
sem voru gerð til að halda þeim ungum
sem okkur var bannað að bragða
nú eru guðirnir dauðir og eplin okkar.

Og tréið hefur verið hökkvið niður,
þess í stað spretta þúsundir smá trjáa
sem gefa hálfguðaepli
sem óhætt er að bíta í
og við verðum gömul
og deyjum
en á meðan við lifum erum við ung
að eilífu
Amen.
-Sithy-