Þetta er fyrsta ljóðið sem ég skrifa á íslensku, svo sýnið miskun…

Augu mín eru blind af ást,
ást; hinni frábæru vímu,
Það heldur mér gangandi í gegnum daginn,
gangandi í gegnum öll vandamálin.

Mig dreymir daglega um þig,
dagurinn lengist sífellt.
Ég get ekki ráðið við mig,
aldrei; augu mín sjá aðeins þig.

Þú ert hin eina og sanna, án efa,
einungis í draumunum nálgast ég þig;
Mér hefur lengi liðið svona.

Ég myndi reyna að gera allt;
allt til að fá að spyrja þessa 1 spurningu,
líður þér eins?