hann starir í augu þér
hann öskrar í eyru þér,
hann grípur um hendur þínar
og þú kemst ekki neitt.

hann grípur um hjarta þitt,
hann sparkar í maga þinn,
hann kremur þína sál,
og þú verður máttlaus.

hann eyðileggur líf þitt
hann heldur þér andvaka,
hann grætir þig
og þú verður að engu.

þú verður að rífa þig lausa
þú verður að sparka á móti
þú verður að sofna samt,
óttinn fær ekki að vinna.
cecilie darlin