Ég elska fiðringinn sem fer
um líkama minn,
þegar náttsvart myrkrið
sveipar mig leyndarhjúp
og sveittir draumar
rispa grundvöll tilveru minnar.
Á meðan þögull máninn
gægist inn,
á nakinn líkama þinn.