Blekkingarvefur Húsmóðurinnar

Ég lifi í þeirri blekkingu
að ég sé ekki firrt.
Ég á heimili, börn, bíl og eiginmann
og er hamingjusöm.
Ég er í vinnu, góðri vinnu
og er sátt.
Ég á flott föt og góða foreldra
og er ánægð.
Ég kýs XD
og er glöð.
Ég fer í kirkju og trúi á Guð
og er kát.

En eitthvað er ekki rétt…
Í huga mínum er
heimilið brunnið, börnin dáin, bíllinn sprunginn og eiginmaðurinn farinn.
Í hjarta mínu er
vinnan handónýt og það á að reka mig í næstu viku.
Í huga mínum eru
fötin ljót og farin úr tísku og foreldrar mínir óþolandi.
Í hjarta mínu er
XD aðeins að nýta grunnhyggju mína til gróða.
Í huga mínum er
kirkjan heimili hræsnara og Guð er dauður.