Fréttaþyrstur maur skilar löngu dagsverki
kemur þreyttur heim eftir erfiðan dag
neyslutermíti sem ber ofbjörg í bú
syfjaður leitar að ódýrri afþreyingu

um hátíðir er búið hans skreytt til veislu
sparibúnaður bónaður og stilltur til sýnis
betri hlutir fengnir lánaðir úr vinabúum í kring
yfir heitum kræsingum er smattað á fréttum
um feilspor þekktari maura með stærri bú

búið heldur rólega áfram að fyllast
enda tími útsala og hagstæðra lána
uns allar hirslur og geymslur eru gjörnýttar
kominn tími til að flytjast í stærra bú
“True words are never spoken”