Undarleg birta skín
af daggarvotum, grá-grænum mosa
í kolsvörtu hrauni.

Yfir stendur þríhyrningsfjallið
kyrrt og hljótt
eins og það hefur gert í þúsundir ára.

Um nesið liggur appelsínugul æð
með of háan blóðþrýsting
og stöku blóðstíflu.

Við vík eina
eru margar tjarnir og ver
þar sem gert er út á ál.