Gamalt, langaði bara að setja þetta inn :)

Ég stend á bryggjunni,
og horfi út á hafið.
Horfi á öldurnar falla saman.
Fylgist með friðnum.

Ég velti því fyrir mér,
hvernig það væri,
að láta mig detta þangað niður.
Berast með straumnum.

Á endanum sökkva niður á botn.
Liggja í friði og ró.
Endalausum, óröskuðum svefni.
Það væri dásamlegt.

Ég tek eitt skref áfram.
Stend á brúninni.
Horfi niður.
Stekk.

Aldrei aftur sást stúlkan á bryggjunni.
Minning hennar var varðveitt.
Sál hennar fljótandi í friðnum.
Hafið. Hennar eina ást.