Þær ganga eftir götunni
í láréttri röð.
Glæsilegar píur
með ljóst litað hár.

Þær vilja vera sætastar
í öllum heiminum.
Mála sig og greiða
eins og leikarar.

Því gelgjunar,
í öllum bílum hér,
leika sér að þér
í leit af sjálfum sér.

Nýjasta tíska,
fylgjast alltaf með.
Eru alltaf fínar
og leika sér af þér.

Þú segist ekki þekkja þær
sem standa þér við hlið.
En sannleikur er sá
að þú þekkir þær mjög vel.