Það er eins og ég sé hér
að bíða eftir þér
og sólin skín en ég sé ekki
hvernig þú lítur á mig
í kvöld.

Ég horfi á þig…
lengi,
ég held ég sé
orðinn ástfanginn
í fyrsta sinn.

Þú með svo fallegt
dökkt hár
og svo flottar
þunnar varir…
Ég brenn.

Ég verð að fá að tala
við þig
en ég er bara svo feiminn
að sjá þig.

Hvað get ég gert
til að stækka lítið hjarta?

Ég er svo hræddur
um að vera ekki sá rétti
fyrir þig
en ég gæti samt reynt.

Ástarþráin brennur inn í mér
og ég þarf að sjá þig.

Að horfa er að sjá
en það er ekki eins og ég
Ég þarf að reyna
eða bíða lengur…
eftir þér.