Ég
er tæpast nokkru merkilegri en þú
þó hef ég getað haldið mér í fjarlægð frá þér
nógu mikilli til þess að þú hafir ekki vitneskju um mig
og hve mikið dái þig
og vitir varla að ég sé þar sem þú ert.

Því þú
ert svo ægilega áberandi
að ég get ekki sungið án þess að hugsa um þig
né heldur drukkið og skálað án skálar þér til heiðurs
Er þú birtist einhverstaðar veit ég af því
og fer hjá mér
því mig langar til að vera með þér
njóta þín og þinna gæða
það er ekki flóknara en svo.

Við
gætum verið góð saman
jafnvel meiri en við erum í dag
svona sitt í hvorulagi
látum á það reyna
og hittu mig á horninu,
svo löbbum við saman fyrir það og sjáum hvað bíður okkar.