Ég er úr nýja postulínsstellinu
Ligg hér á borðinu
Ég er glænýr
Aldrei búið að borða af mér
En klaufska húsmóðirin
Missir mig niður á flísarnar
Ég finn hvernig ég leysist í sundur
Hvernig ég brotna í smáar flísar
Ég ligg nú í 1000 molum
Brotin, ónothæfur
Mér er sópað upp
Og hent út í rusl
Enginn vill sjá mig
Ég er ekki lengur fallegur
Ljótur og ligg á ruslahaugi
Og geri ekki gagn
Bara brotin diskur
Sem var eittsinn nýr og fallegur
En er nú ennþá með sveindómin
Það er ekki búið að nota mig
Ég er ónotaður
Ónothæfur
Ógeðslegur
Ó og Æ
Æ og Ó
Er ekki öllum skítsama
Skítsama um brotin disk
Sem var eitt sinn fallegur

3gill XInd.