Augu okkar mætast í snjókomunni, 
þú spyrð mig hvort mér sé kalt, 
mér hlýnar 
og fæ gæsahúð niður í tær,
 snjófjaðrirnar svífa um, 
óreiða, 
hringiða tilfinninga. 


Ef maður horfir nógu lengi á fjaðrirnar falla sér maður reglu í óreglunni, óreiðan verður að skipulagðri ferð, frosttárin falla niður til jarðar.  

-Kristjana