opið öllum Á horninu standa
háhælaðir skór
bíða
í logni
eftir sveip
Tipla síðan
upp
tröppurnar,
veifa.

Buxurnar eru útvíðar
skórnir rauðir
lakkaðar neglur
nefið nett
augun frá
hárið hulið
heklaðri húfu.
Tekur í hurðar húninn
gengur inn.

Bak við lokaðar dyr
er guðshús
opið öllum.
Kemur út grátandi
hokinn
Tiplar niður tröppurnar
fer

Skórnir stansa eftir
á horninu.
Ljósið
lognast
út
í
húmsins
ró.