Eins og djöfull sem sækir að mér -
æpir - “Sæl nú! Sæl nú!”
eða dreki sem flýgur að mér
og spýr eldi og eimyrju
en svo verða þeir að fuglum sem syngja
um lítil tré og stór fjöll
og ég gleymi mér
þangað til ég sé á öxlum mínum
púka og engill
og þeir rífast
reyna að sannfæra mig
“hoppaðu”
“nei hoppaðu ekki”
“strídd'onum”
“nei strídd'onum ekki”
og ég hlæ og bægi þeim frá mér
og þeir fljúga á braut
og ég heyri söngin ennþá
um lítil tré og stór fjöll.
-Sithy-