Áköllun í hljóði
kallað í svefni
hrævareldar og sauðskinnsskór
og vaknaði svo með óum.

Ísinn bræddur
eldurinn kæfður
og börnin fæðast í glösum
það stendur skrifað
að maðurinn hræðist
ekkert á þessari jörðu
en hrædd og sár
hlaupa þau nakin
þegar eldurinn vaknar
og draumurinn verður að martröð.

Áköllun í ópi
hrópað i svefni
vinnumenn og vökukonur
og vaknaðu svo bara með hljóðum.
-Sithy-