Gervifólkið í kring býr til gleðilegt bros
batterís hláturinn kviknar hressilega vélrænn
litað hárið flaksar fersklega í sjávargolunni
silicon brjóstin gefa barninu G-mjólk á spena

ilmefni afdala verksmiðju pína kynhvöt tryllta
gervifrjóvganir æxla næstu kynslóð manna
getnaðarvarnir gera athöfnina að íþróttagrein
gúmmídrjólar og egg kæta kynsvelltan landann
uppblásnar eiginkonurnar prjóna nælonsokka á kvöldin
fullkomin plastbörnin verða vinsæl og vinamörg

skemmtistaðir verða of háværir fyrir talað mál
lyfjaflóran og brennivínið opna huga feiminna sála
ljósakortin og líkamsrækin sækja líkan heim
restin sturtar sér niður klósettið á einkamal.is
“True words are never spoken”