dulúð Í norðri sést
ljósið dansa
af dulúð létt
og bláar stjörnur glansa
við ísilagða stétt

ljóma glæddir
grænir geislar
iða við himins brú

lífi gæddir álfar
dansa
við jökulsvell
með bjarta trú