…annarlegu andlitin með sígræn tár í hvörmum
brosa við mér skært og taka mér opnum örmum
ég nálgast himinn hraðar og í alsælu ég svíf
því núna hef ég fundið mitt raunverulega líf…

…tindar allra hárra fjalla sýnast núna nær
sorgir allar áður slæmar færast lengra fjær
seiðingurinn kitlar mig og nuddar heila minn
því fyrir einni stundu - ég sprautaði efninu inn…

…lengra upp svo léttur fugl um allan heiminn sé
og kyrja núna lofgörð mikla - um efnið ell ess dé
ég gæti aukið skammtinn strax - og ennþá hærra flogið
og gleðivökvann úr himnum þá - með svalaröri sogið…

…nú upplifi ég fullkomlega Ljúfustu Stund hans Danna
með sprautustungu tekst ég á loft - og geima alla kanna
hví skal ég falla aftur niður og draga úr minni neyslu?
þegar efni þetta er það eina sem drífur mína keyrslu?

ég vil ei hætta - fram ég þýt
upp milli skýja ég svíf
því þegar ég allar reglur brýt
þá upplifi ég mitt líf…


-pardus-

p.s. Ég er ekki LSD-fíkill - meira ort í gamni ;)
Náttúrubarn, landfræðinemi, veiðimaður, ljóðskáld og alls konar manneskja.