hús
húsið heillar
huga

og
hugur heillar mig

ljós mitt og líf
upp til þín ég klýf

þú ert sólin
og
kaffið sem
mamma drakk

barnsins ljúfu stundir
við arinn þinn og yl

angann þinn úr hlöðu
og hesti
pabbi minn

garðurinn fegurstu rósir
og berin þín svo mild

þú ert lífið
þú ert sólskyns blik
að sjá

ástin með orða klið
lukka og ósk að fá

já það erum við
rauða húsið
með gömlum sið.