Þeir sögðu að ég væri ekki
eins og aðrir.
Þeir settu mig inn.
Minn eini stuðningur er myndin
af Jesú sem hangir fyrir ofan
rúmið mitt, læknirinn líkist
sjálfselskum púka í hvítum
slopp.
Ég vil fá að lífa og njóta
minnar gleði í þeim heimi
sem ég áður lifði í.
Ég var svipt því frelsi
sem mér var gefið,
og allar mínar hugsanir
og túlkanir eru einskis nýtar.
Því hann hugsar fyrir mig,
þetta tilfinningalausa fólk
Guð fyrirgefi þeim.

Höf. tecila2