Það voru endur á tjörninni þennan dag
tjörnin var frosin
bara smá blettur fyrir þær að synda á
sitja á
lítil börn gáfu þeim brauð
og sólin skein eins og ekkert hefði í skorist
en það voru tár á kinn
og blóð rann úr sári
þú varst svo ráðviltur
annað en endurnar
sem voru svo friðsælar
á tjörninni.
-Sithy-