þetta er ekkert e-ð alvarlega flott, ég veit það, bara e-ð sem að ég vildi koma frá mér… endilega gagnrýnið….

Ég vildi að ég væri mjó
af fitunni, ég hef fengið nóg.
Ég vildi að ég væri fögur
svo falleg, að af mér yrðu sagðar sögur.
Ég vildi að ég gæti alltaf sagt satt,
að lífið liði ekki, allt í einu, svo hratt
og að með einu brosi gæti ég fólk glatt.
ég vildi að ég væri nógu vitur
til að vita, að ástin er hlý en ekki bitur.
Ég vildi að ég væri þér ekki reið
ég bara vildi að þú vissir
hve lengi ég eftir sannri ást beið.
En mest af öllu ég vildi
að lífið sýndi mér mildi,
leyfði mér hvað sem það væri, það að gera
og léti mig svo að eilífu vera….