“Ég elska þig”
varir þínar hreifast
í slow motion
setningin bergmálar í hausnum á mér

Ég veit að ég á að brosa til þín
líta í augun á þér
og segja:
“Ég elska þig líka”

Ég reyni.
En orðin vilja ekki koma.

Mér þykir vænt um þig
Ég elska þig… á minn hátt
en ekki eins og þú vilt

Ég kann ekki að elska