Í bragfræðitíma í skólanum fengum við einfalt vekefni: Búið til persónugervingar fyrir árstíðirnar. Ég tók það nokkrum skrefum lengra og bjó til fjögurra erinda kvæði í ljóðahætti um árstíðirnar. Hér má sjá afraksturinn:

Ungur og óreyndur
andans maður
Vorið er vatnið tært
Syngja fuglar
fagurt um upphaf
Vorið er vonarbirta

Bljúg er bænin
börnin leika
Sumar er sólar ævintýr
Ástir og yndi
eilífð er virðist
Sumar er sálar sefjun

Litir dofna
deyja blómin
Haustið er svartsýnis spá
Dvínar gleði
gleymist sumar
Haustið er gráhært grey

Harðindi hefjast
að hausti loknu.
Vetur er vonleysið.
Seint mun sólin
sindra á ný.
Vetur er hörgull og harmur.


Ég vona að þið hafið haft ánægju af
-Arnó