þetta er fallegt ljóð
ljóð um ástina og lífið
fuglana og blómin

æ hvað lífið getur verið yndislegt

en það er ekki alltaf yndislegt

stundum er það saurugt og skítugt
fullt af sora og viðbjóð
ógeði og drasli

en svona er lífið
svartamyrkur einn daginn
sólskin annan

svo eru sumir sem vilja hafa það svart

þeir um það….