Saklaus

Þegar þig ég fyrst sá
varstu ung og saklaus stelpa
Fylgdi þér hvert sem leið þín lá
langaði svo að þú yrðir mín telpa

Um unglingsárin byrjaðir þú að breytast
Byrjaðir að drekka og reykja
vímuefnum þú fórst að ánetjast
úr lífi þínu þu vildir mér feykja

Þú vildir ekki viðurkenna
að vandamál ættir við að stríða
illa þér var farið að líða
sá á þér að farin var að myndast spenna

Ég gerði allt til að hjálpa þér
en þú vildir ekki hlusta
vertu góð og komdu með mér
í meðferð og allir á þig hlusta

Bara ef þú hefðir hlustað beint
á það sem´eg hafði að segja
þá hefði það ekki verið of seint
bjarga þér hefði getað, en þú vildir heldur deyja


Tileinkað þeim sem eiga vin í rugli.