Beinar línur verða sveigðar,
andardráttur hægist,
hjartað deyr.

Líf mitt er að stoppa.
Kraftur minn þverr.

Þú verður mér fjær
en elíft nær.
Því við ferðumst
á ljóshraða.