Þetta verður brátt á enda, þó sumir halda í von
En við lifum á seinustu tímum fyrir fall Babylons
Og berjumst í blindni, sjáum ekkert fyrir bræði okkar
hatrið flæðir í blóði okkar og ekki fyrr en við deyjum að þetta flæði stoppar
Fjölmiðlar peppa okkur upp við erum aðeins þeirra verkfæri
Berjumst til dauða fyrir þá svo pistlar þeirra verða fréttnæmir
Ég sé fána á lofti og fólk þykjast berjast fyrir sína þjóð og trú
Veifa litunum fram og til baka, og reyna eins og þau geta að hella blóði út
Taka dýfur, kafa í blóðbaði, horfa á líkin fljótandi
Synda um hreikin af sínu þjóðerni, þetta er á það sem stjórnvaldið stólaði
Ráðast á landsvæði, saklausir borgarar reyna að verja land sitt
En haturfullir hermenn skilja eftir auðn fyrir stjórnvöld og fela sig bakvið þeirra andlit
Ég veit að ég get ekki bundið enda á hatrið, en ég ætla að dreifa orðinu
Og reyna að lokka burt allt þetta hatur sem liggur í loftinu
Ég skil haturinn en fordómararnir eru engu líkir, við dæmum þjóðflokka
Þráum að sjá fljótandi blóðflokka, höldum að orustan mun fljótt stoppa
En því meira sem þið viljið sjá, fáið þið, svo á meðan blóð hellist birtast
hærri dánartölur þessi þrá ykkar í blóð er það sem hjá ykkur kallast þjóðernishyggja…


Þjóðafulltrúar segjast standa saman, lönd mynda þjóðablökk
Myndbútar sýndir aftur og aftur og ríkari verður ykkar sjónvarpsstöð
Kannski ætti ég að rétta hjálparhönd heilsa upp á þessi fórnarlömb
Halda utan um syrgjendur, frá syndurum niður í saklaus skólabörn
Halda í hendur þeirra og róa þau niður leika hlutverk friðarsinna
En ég veit að þetta eru þeir sem gráta núna en munu myrða seinna
Dánartala er birt frá ykkar missi og fréttamenn ofsækja dána
Þið dansið ykkar stríðasdans í takt við óp ykkar fordæmdu sála
Hvað græðið þið á kvöl annara? að sjá þau gráta, en hvert mannsbarn grætur með
Og er ykkur sama um það bara ef þið fáið að bragða á hinni sætu hefnd
Ætliði að varpa flugvélum á þau jafna metin mun hann hætta þá leikurinn
Ætlið þið þá að klæðast heimskupörum annara í stað þess að læra af reynslunni
Standið á sama um hina, standið fyrir rétti ykkar í órétti
Talið um frið og jafnrétti, á meðan þið óvini ykkar út frá þjóðerni
Klæðið ykkur upp í feluliti, skjótið að hinum litunum, skapið stórfréttir
En þið skutuð ekki á óvinaherinn, aðeins óeinkennisklædda borgara með blóðbletti
Við höfum aldrei litið á aðra en þegar við erum særð þá við stöndum saman
Berjumst á meðan stjórnvöld græða á stríði, dauði annara er þeirra söluvara
Þeir eyða síðan peningnum í meiri dauða, nálgast gjaldþroti
Stylla okkur í fremstu víglínu, við erum aðeins peð á þeirra taflborði
Og það eru peðin sem deyja fyrst, og þetta heldur áfram þar til þeir eru skákaðir
og þeir segja þetta lítið gjald til að greiða fyrir málstaðinn
En Þetta er endirinn, okkar þriðja og seinasta heimsstyrjöld
Og við þróuðumst ekkert, fórnum okkur enþá fyrir trúnna eins og á krossferðum á miðöld…