Dalur myrkurs, dimmt í sál
dauðinn sækir lífsins bál,
titra, renna, tár á vöngum
tíminn eyðir dögum löngum.

Svartur hundur nagar hæla
hatur vex, sál fer að skæla
loksins kveð ég heimsins kvöl
komin burt frá lífsins böl.

Dett um haturs heitu strauma
held mig enn við endans drauma
hvað mun gerast, kveð ég veröld
hverf ég burtu, ófríð og köld ?

Fylgstu með, fljótt kemur framhald
finn ég aftur lífsins aðhald ?

-Some people tell me that I need help…some people can FUCK OFF and GO TO HELL!-