Orsakir sem ráða mínu lífi
rífa mig á hol eins og kaldur gustur.
Aldrei er stjórnin í mínum höndum
þess vegna er ég
hjálparlaust barn
fast í framþróun tímans
Sem virðist skeyta litlu um mig
eða mín örlög

Ég reyni að breytast
verða eitthvað
vera eitthvað
meira
en kerfið sýgur mig inní sig
og kastar mér út án þess
að hugsa sig tvisvar um

Þess vegna skít ég á kerfið
og neita að viðurkenna tilvist þess
einungis til að halda eigin geiðheilsu
er ég þess vegna eins og lítill depill
standandi utan við hringiðu sorans
sem umlykur okkur öll