Kortalaus
á lífsins krossgötum.
Sigurviss maður
stendur á þeim miðjum.
Fyrirgefðu herra,
í hvaða átt er hamingjan ?
,,Hamingjan er ekki ákvörðunarstaður
heldur hugarástand.“
Alveg er það eftir mér
að lenda á svona rugludalli.

Ráðvillt
á rúmsjó ástarinnar.
Brosandi kona
siglir þar af öryggi.
Fyrirgefðu frú,
hvern á ég að elska ?
,,Að elska sjálfan sig er
mikilvægast alls„
Nei, hættu nú alveg,
var verið að rýma Klepp?

Einmanna
á dánarbeði
Enginn til að hæðast að.
Fyrirgefðu drottinn,
hvert er ég að fara?
Ekkert svar.