Það var mitt sumar,
það var þitt sumar
er við runnum saman í eitt
tvö hikandi hjörtu,
tveir glaðbeittir munnar,
fjögur ástfangin augu.
Mitt varð að þínu,
þitt að mínu
þetta sumar.
Sem eitt elskuðumst við
undir himni
hinnar langlífu sólar
uns eitt varð að tvennu.