Fegurð heimsins

Lítið barn liggur nakið
framan við autt blað.
Því er fært pensill í hönd
og gert að mála fegurð heimsins.

Gamalt barn
hokir framan við
fullkláraða mynd
af litrófi lífsins.

Sjáðu, hvað það hefur málað!

Það hefur málað þig,
því þú ert fegurð heimsins.