Þau okkar sem heimsótt hafa ljóðasíður Huga vita að það er ekkert grín að setja fram skoðanir sínar þar. Skrifi menn eitthvað sem líkst gæti mótmælum eru forsprakkar gæpaklíkunnar umsvifalaust mættir til að bæla niður alla frjálsa umræðu um þann leirburð sem flýtur hér um síðurnar. Nei, ekki skulu menn reyna að setja fram skoðanir sínar á þessum ósköpum heldur skal þér líka við þetta eða hundskast burt. Þetta viðhorf blífur reyndar líka á öðrum síðum Huga. Því segi ég við menn: Rísið upp gegn fasistunum, lítið aldrei til baka og rakkið leirburðinn niður!!!!!!!!!!!!